04.03.2008 14:56:24 / baldurmar

ehemm

Jæja, hef kannski ekki alveg staðið við stóru orðin um að vera duglegur að blogga en það er amk styttra síðan en síðast!!!
Ég er búinn að ákveða að sleppa þessu nba trade bloggi.  byrjaði tvisvar en þetta yrði bara allt of löng og leiðinleg lesning.  Hægt að sjá nóg af svoleiðis dóti útum allt á netinu.

Annars var ég að koma heim eftir að hafa klárað kennsluna í dag.  Fór upp í fjall með 5. bekk í skólanum og sýndi mína alþekktu takta á skíðunum.  Alberto Tomba hvað??????
Eitt sem mér fannst alveg magnað þegar við komum þarna upp í fjall og það er að skíðaskóframleiðendur mega eiga það að þeir eru býsna kaldhæðnir.  Þar sem ég var sveittur að hjálpa um 20 fimmtubekkingum við að troða sér í skíðaskóna og smella öllum smellunum, þar sem allir sitja gargandi á mann um að hjálpa sér næst, tók ég eftir að á skónum stóð:  Rossignol - easy entry!
Þar sem ég var að djöflast við að koma þeim í skóna fannst mér þetta nokkuð skondið.




» 2 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 10:38:40 / baldurmar

blogg????

Í dag sit ég inná skrifstofu og hef svo lítið að gera að ég ætla meira að segja að blogga!!
Það eru semsagt foreldraviðtöl í dag og það eru almennt ekki margir sem stressa sig á að tékka á íþróttakennaranum þann daginn.  Sem er hið besta mál.

Núna ætla ég að setja stefnuna á að vera aðeins duglegri að blogga, það er annað hvort það eða að hætta þessu alveg.  Ætla að sjá hvað ég endist, verður sennilega ekki alltaf löng eða merkileg skrif en alla vega eitthvað.

Ég horfði fyrst á viðtalið við Þorberg Aðalsteins í gær.  Þvílíkt bíó!!!  Að maðurinn skuli halda því fram að hann hafi ekki verið fullur er bara fyndið.  Á hverju var hann þá???  Þvoglumæltur, grípandi fram í fyrir öðrum, blammerandi allt og alla, segjandi frá trúnaðarmálum í samningagerð ofl.  Skil ekkert í HSÍ að gera ekkert í þessu.

Segi þetta nóg í bili, en mun skrifa um hvað mér finnst um skiptin í NBA fljótlega..



» 1 hafa sagt sína skoðun

09.02.2008 22:41:35 / baldurmar

Rambo!!

Fór á Rambo IV í gær.  Búinn að hlakka til í marga mánuði.  Við félagarnir horfðum á fyrri 3 myndirnar í vikunni og vorum því klárir í slaginn þegar Sly mætti enn á ný.  Væntingar voru miklar og spenningur í mannskapnum.  Sly tókst hið ótrúlega og fór fram úr björtustu vonum, þvílík mynd!!!!!!  Hef sjaldan eða aldrei séð annað eins.  Mest brútal mynd sem ég hef séð í bíó og kallinn svalari en allt!  

Mig langar aftur...

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 13:12:15 / baldurmar

le blog

ótrúlegt en satt þá er bara töluverður tími síðan ég bloggaði síðast....

síðan þá hefur ýmislegt gengið á, unnum Grindavík hérna heima í sennilega skemmtilegasta leik vetrarins so far.  Djöfull var það gaman!  Var ekki í hóp, er ennþá að bögglast við að koma gamla skrokknum í sæmilegt ástand :)  Eigum Keflavík á fimmtudaginn og það er eins gott að við höldum áfram eins og við sýndum á móti Grindavík en dettum ekki í sama ruglið og við vorum í í leikjunum þar á undan.

Núna erum við "sambýlingarnir" í átaki, nammi og gos af skornum skammti og tökum all svaðalega á  því í gymminu.

Helköttaður fyrir páska og tanaður í drasl ;) 


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.01.2008 17:20:05 / baldurmar

á

skíttöpuðum í gær.   það er samt eiginlega ekki nógu sterkt tekið til orða, hrein hörmung.  þurfum að gera eitthvað í okkar málum, það er ljóst.

svo mikið fyrir recordið mitt.... 


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 01:18:06 / baldurmar

já ég er á lífi!

afsakið bloggleysið...

Af mér er allt venjulegt að frétta.  Hátíðarnar voru góðar, át eins og svín og slappaði bara af. Fyrir utan annan í jólum reyndar sem fór mestallur í að sitja á klósettinu. 

Hef ekki ennþá fengið leyfi til að byrja að æfa aftur, fer ekki í tékk fyrr en 4. jan.  Hef samt fulla trú á að fá að byrja þá.   Stalst til að vera aðeins með á æfingu í dag.  Það var gríðarlega gaman að hreyfa sig aðeins en hins vegar var ég farinn að blása eins og hvalur eftir 3-4 ferður upp og niður völlinn.  Hef aldrei á ævinni verið jafn feitur og úr formi eins og núna.  Það verður átak að koma sér í form aftur en ég hlakka ekkert smá til að byrja að svitna lýsinu.

Að öðru, ég og Valur kíktum á Maze, Gmodds, Ósa, Einar og co á H&H.  Skemmst að segja frá því að þetta voru mín fyrstu kynni af H&H live og stefni ég á að endurtaka þetta við tækifæri.  Toppband.

Ætla að reyna að vera ögn duglegri að blogga hérna, leyfa fólki að fylgjast með baráttunni við bumbuna...

Kv

feiti gölturinn 


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.12.2007 00:09:49 / baldurmar

kallinn kann þetta!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 13:10:37 / baldurmar

Fótboltamenn.....

Ég hef lengi sagt að atvinnumenn í fótbolta hljóta að vera mestu aumingjar í heimi. Það sem þeir geta hrunið í grasið og vælt og skælt yfir smámunum er ótrúlegt. Það fer fátt meira í taugarnar á mér en einmitt svona grenj. Alltaf verið að reyna að væla eitthvað út.

Fótboltamenn eru líka sennilega verstu leikarar í heimi, þ.a.s. fyrir utan Vinnie Jones en hann er auðvitað kóngur.

Hér eru nokkur stutt dæmi um þetta:

 

 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 18:30:49 / baldurmar

fannst þetta gott

I remember the first time Allen Iverson and Felipe Lopez faced each other in the Garden and it was supposed to be a start of a rivalry. That turned out to be as big a rivalry as Coke vs. RC Cola.

J.A. Adande

 

Hver man ekki eftir RC Cola?

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.11.2007 18:44:00 / baldurmar

....og þess má líka geta að ég er pabbi strákana í The Boys!

Sælir lesendur góðir sem og aðrir lesendur

Bíð núna spenntur eftir að komast að því hvort við förum suður eða ekki.  Að venju er veður ógeðfellt þarna fyrir sunnan og þvi óvíst hvort af för verði.  Eigum leik gegn Fjölni á morgun kl 16:00 sem er svokallaður möstvin leikur svo ekki sé fastar að orði kveðið.

Það var verið að velja í úrvalslið fyrstu 8 umferðanna í deildinni og var liðið svona skipað: B Walker, Ósi, Jón Nordal, Pax og Dimitar.  Þetta val finnst mér hreint út sagt fáránlegt!!  Hvernig er hægt að sleppa því að velja Cedric????  Maðurinn er með bestu tölurnar í deildinni og hreint ótrúlegt að taka Dimitar fram yfir hann.  Einnig er Nordal frekar sérstakt val, maður með tæp 9 stig og 6 fráköst í leik.  Hvað með t.d. Brenton??

Að allt öðru, þá er Kiddi píka toppmaður!!!  Hvet alla til að horfa á myndbandið hér að neðan til að kynnast þessum snilling nánar.  Efast um að það sé til fjölhæfari maður í heiminum!!

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 20:14:35 / baldurmar

Loksins loksins er ég laus við gipsið.

Mætti á slysó kl 10 í morgun og var beðinn um að bíða andartak. Getur einhver samt sagt mér hversu langt eitt andartak er?? Ég hef alltaf staðið í þeirri meiningu að það ætti að vera frekar stutt, en oftast ef maður er beðinn að bíða andartak þá er það bara töluverður tími. Svo var vissulega í þessu tilfelli.

Síðan var ég kallaður inn og hjúkkan hóf vélsögina á loft. Alveg magnað hvað það heyrist hátt í þessari græju, ekki laust við að það fari smá fiðringur um mann í hvert skipti sem sögin hrökk í gegnum gipsið. Þrátt fyrir að þetta eigi að vera algerlega hættulaust.

Þegar gipsið náðist af kom í ljós eins og ég vissi svo sem að fóturinn hefur rýrnað töluvert og var ægilega máttlítill eitthvað. Að sjálfsögðu kom einnig mjúkur angan eftir þessar 3 vikur síðan skipt var um gips.

Svo hækjaði ég mér yfir á röntgendeild og var beðinn um að bíða þar andartak. Það andartak tók einnig töluverða stund að líða, ekki síst sökum þess að maður var jú býsna spenntur yfir að sjá hvernig þetta kæmi nú út.

Svo er ég kallaður inn og það eru teknar einhverjar 3 myndir og ég sendur hækjandi aftur inná slysó þar sem ég á að bíða eitt andartak enn. Þá tókst mér loks að taka tímann á einu andartaki því að fyrir framan rúmið sem ég lá í var klukka og reyndist tíminn vera tæpar 30 mínútur en þá kom inn læknir sem sagði að myndirnar litu býsna vel út. Góður gróandi í brotinu og allt virðist vera á réttri leið. Hins vegar vildi hún (þetta var ss kvenlæknir) fá álit vakthafandi bæklunarlæknis um hvort ég ætti að fá spelku. Og því beið ég eitt andartakið enn.

Nokkru seinna kemur hún aftur og segir að ég ráði hvort ég vilji spelku eða treysti mér til að fara nógu varlega til að byrja með. Sem betur fer er það nú mín sterkasta hlið að þekkja mín takmörk og að taka ekki óþarfa sénsa eða standa í einhverjum fíflalátum (hóst hóst).  Því valdi ég að sleppa spelkunni og geta þá farið að styrkja löppina sem fyrst.  Það eru því engin hlaup á dagskránni á næstunni en ég má gera ýmsar styrktaræfingar fyrir kálfann og allan pakkann í kringum ökklann og get prófað að setjast á þrekhjólið.  Ég verð áfram með hækjurnar eitthvað til að byrja með en mun smátt og smátt geta reynt meira á fótinn.

Þann 27. desember verður draslið svo skoðað aftur og fæ vonandi grænt ljós á að fara á fullt.  Sem þýðir að ég gæti náð leiknum á móti Snæfelli 30. des orðinn feitur og pattaralegur sem mun nýtast mér vel undir gegn Bærings og Sigga Þorvalds!


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 16:30:33 / baldurmar

dómsdagur að renna upp...

Á morgun er stóri dagurinn, þá verða fjötrarnir sagaðir af kallinum og teknar myndir af þessu.  Það eru 3 kostir í stöðunni, að ég labbi út (sem er lang líklegast held ég), settur aftur í gifsi eða einhver aðgerð.  Þetta leit ágætlega út eftir fyrstu 3 vikurnar svo ég trúi nú varla öðru en maður komi á sprettinum út.

bíð spenntur... 


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 22:36:28 / baldurmar

vika...

í gærkvöldi var ég alveg trylltur útí þetta helvítis blog.central drasl.  skrifaði heljarinnar blogg, um síðustu 2 leiki og eitthvað grenj en svo bara kom ekkert þegar ég ýtti á staðfesta!!   djöfuls drasl!!   Svo hérna er útgáfa í svipuðum stíl og stuttbuxurnar hans John Stockton:

Unnum stólana í svaðalegum leik.   Cedric kláraði leikinn með 2 vítum þegar 0,2 sek voru eftir.

Drulluðum uppá bak á móti skallagrím.  Lélegasti leikur sem ég hef séð Þórslið spila í mfl

Vika eftir í gifsi, jei

Gaur sem er á trial hjá Arsenal gefur greinilega ekkert eftir!  tékkið á þessu:

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 20:46:28 / baldurmar

13 dagar...

Það var merkisdagur í dag, ég nefnilega setti fötin mín inní fataskáp!!  Ég er semsagt búinn að búa hérna í Snægilinu í rétt um 3 mánuði og var fyrst núna að klára að setja fötin mín inní skáp.  Leti? ....jafnvel

13 dagar eftir í gipsinu, þeas ef ég verð ekki búinn að naga það af mér fyrr

Tindastóll á morgun úti.  Ef það er einhverntíman must-win leikur þá er það þessi.  Þurfum að keyra völlinn og láta þá finna fyrir því að þeir nota bara 6 leikmenn.  Þeir eru samt seigir, stóri Pólverjinn getur alveg skotið en djöfull fer hann í taugarnar á mér!!  Vælir og vælir, humongous stór en alger sulta.    Mín spá 79-86.

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 10:48:54 / baldurmar

happy happy joy joy

Þá er maður nýkominn af slysadeildinni þar sem var verið að skipta á mér.  Tekin ný mynd og settur aftur í gipsi.  Brotið liggur vel og læknarnir segjast vona að ég losni alveg úr gipsmeðferð eftir 3 vikur til viðbótar.  Kálfinn hríðminnkar og með sama áframhaldi sýnist mér að það verði bara tómur skinnpoki sem hangi utan á leggnum á mér eftir 3 vikur.

Ég held svei mér þá að þetta sé eitthvað það ömurlegasta sem ég hef lent í, þessar 3 vikur sem eru liðnar eru búnar að vera djöfulli leiðinlegar.  Get ekki beint sagt að ég sjái fram á að þetta verði eitthvað skemmtilegra með tímanum. 

grenji grenj


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18